Við erum Korsiletturnar, sérhæfum okkur í swing og djass tónlist frá 3. til 6. áratugs síðustu aldar. Hljómsveitin samanstendur af söngvara tríó, gítar- bassa- og trommuleikara. Ljúfir djass standardar í bland við frumsamið efni og hittara síðustu ára í gamaldags búningi.
Við erum með tilbúna sett lista fyrir ýmis tilefni. Höfum útgefið jólalag á helstu streymisveitum.
Við erum þraulvön og höldum uppi skemmtilegu spjalli á milli laga ef þess er óskað.
brúðkaup, afmæli, gæsa- og steggjapartý, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, hátíðir, skírnir, brúðkaupsafmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, útskriftir