Ég spyr, þú svarar!
Framúrskarandi spurningakeppnir fyrir allar aðstæður!
Kvisslarinn mætir á svæðið með allt sem þarf!
Býð upp á bæði tilbúinn kviss úr fjölmörgum fjölbreyttum og skemmtilegum þemum og einnig er líka hægt að bóka sérsniðin kviss :)
Rúnar Breki heiti ég og stend fyrir því að skapa hágæða spurningakepnnir sem allir hafa gaman af!
Frekar en þurrar staðreyndir og eitthvað sem einungis sérhæfðir snillingar myndu vita þá eru kvissin mín byggð með skemmtilegum og lifandi spurningum þar sem svörin myndu frekar leynast í einhverju gleymdu horni huga fólks frekar en kennslubók.
Klippur og myndefni úr gömlu sem nýju íslensku og erlendu efni auk ljóshröðu lightning round-anna gera kvissin að eftirminnilegri skemmtun sem mun seint gleymast!
Kvisslarinn býr yfir öllum búnaði og tækni sem þarf til að halda upp á kvissin þannig engar áhyggjur ef að þið hafið ekki einhvern risastóran skjá eða hljóðgræjur í heimahúsi!
einkasamkvæmi, brúðkaup, afmæli, útskriftir, brúðkaupsafmæli, gæsa- og steggjapartý, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, hátíðir