Framúrskarandi veisluþjónusta
Matarkompaní er framsækið fyrirtæki í fyrirtækjaþjónustu og veisluþjónustu. Við sérhæfum okkur í þjónustu við mötuneyti og meðal annars tökum að okkur allan rekstur mötuneytisins. Einnig þjónustum við minni fyrirtæki þar sem við útvegum hádegismat sem er afhentur í bökkum beint til fyrirtækja.
Hjá Matarkompaní má líka finna fjölbreytta veisluþjónustu, svo sem fermingarveislur, árshátíðir, hlaðborð og aðra viðburði af ýmsum stærðum og gerðum.
Eigendur Matarkompaní eru systkinin Guðmundur Óli Sigurjónsson og Elín Bjarna, sem reka fyrirtækið saman og sinna daglegum rekstri þess. Guðmundur Óli útskrifaðist árið 2015 sem matreiðslumaður frá Hótel- og veitingaskóla Íslands og hefur starfað við matreiðslu bæði hérlendis og erlendis, fyrir og eftir nám. Hann leiðir matreiðsluna hjá Matarkompaní ásamt öflugu og reynslumiklu starfsfólki.
Elín býr yfir mikilli reynslu í veitinga- og þjónustubransanum. Hún hefur sterkan áhuga á matreiðslu, gæðum og upplifun viðskiptavina og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu, skipulagi og daglegum rekstri fyrirtækisins.
Sameiginlegt markmið eigendanna er að veita faglega, áreiðanlega og persónulega þjónustu, þar sem gæði, skilvirkni og virðing fyrir hráefnum eru í forgrunni.
brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, gæsa- og steggjapartý, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, hátíðir, skírnir, brúðkaupsafmæli