Múlakaffi

Veisluþjónusta · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Hvert sem tilefnið er þá höfum við aðstöðuna, veitingarnar og veisluþjónustuna sem hentar. Segðu okkur hvernig þú vilt hafa þína veislu og við töfrum hana fram fyrir þig. Við sjáum um allt saman og þú getur skemmt þér áhyggjulaus.

Flott framsetning á gæðahráefni
Við setjum veisluna saman nákvæmlega eftir þínum óskum. Matseðlarnir okkar eru aðeins dæmi um þær kræsingar sem hafa kitlað ófáa bragðlauka. Við mætum öllum tilefnum með réttri tegund af veitingum, búnaði, þjónustu og framsetningu. Fyrirtækjaveislur, brúðkaup, afmæli, móttökur eða veislur í heimahúsum. Þetta eru bara nokkur dæmi um þær tegundir af veislum sem við sérhæfum okkur í.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, gæsa- og steggjapartý, hátíðir, einkasamkvæmi, erfidrykkjur, skírnir, brúðkaupsafmæli

Senda fyrirspurn