Nomy er alhliða veisluþjónusta sem tekur að sér allar gerðir viðburða svo sem árshátíðir, brúðkaup, hvataferðir, fyrirtækjapartý, afmæli, útskriftir, fermingar, matarboð og ferðaþjónustupakka úti í náttúrunni svo eitthvað sé nefnt. Við sérsníðum matseðla fyrir hvert og eitt tilefni og útvegum þjóna og kokteilhristara ef eftir því er óskað.
Kokkarnir hjá Nomy búa yfir mikilli sérfræðikunnáttu sem kemur sér einkar vel þegar útbúa skal frumlegan matseðil fyrir þitt sérstaka tilefni.
Við hjá Nomy erum stöðugt að þróa nýja rétti og hugmyndir sem gætu litið dagsins ljós í fyrsta skipti í þinni veislu.
Innblásturinn kemur frá árstíðabundnu hráefni þar sem ávallt er notað það ferskasta sem í boði er hverju sinni. Þetta er svo kryddað með kunnáttu, reynslu og nútímalegum bragðsamsetningum þar sem ferskleiki, hollusta og bragðgæði eru í forgrunni.
brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, gæsa- og steggjapartý, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, skírnir, brúðkaupsafmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, útskriftir