Prentari.is

Starfsfólk á viðburð · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Prentari.is gerir mat og drykki að upplifun.
Við bjóðum upp á nýstárlegar lausnir fyrir viðburði, veislur og kynningar þar sem hægt er að prenta myndir, lógó og skilaboð á valdar mat- og drykkjarvörur með ætu bleki. Markmiðið okkar er að hjálpa fyrirtækjum og einstaklingum að skapa augnablik sem vekja athygli, gleðja gesti og skilja eftir varanleg áhrif.

Hjá okkur mætast tækni, framsetning og þjónusta. Hvort sem um er að ræða vörukynningu, fyrirtækjaviðburð, brúðkaup, afmæli eða aðra viðburði, þá hjálpum við þér að gera upplifunina persónulega, eftirminnilega og í takt við tilefnið.

Sérhönnun fyrir hvern viðskiptavin

Allir drykkjartopparnir eru:
- sérhannaðir eftir óskum viðskiptavinar
- prentaðir eftir pöntun
- framleiddir á Íslandi

Þú getur útfært þína toppa eftir þínu höfði, sem dæmi:
-texta
- nöfn
- dagsetningar
- einföld lógó
- tákn eða grafík

Þetta gerir vöruna fullkomna fyrir:
- veislur
-markaðssetningu
- vörumerkjaupplifun

Senda fyrirspurn