Rikki G

Skemmtun · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Rikki G er reynslumikill veislustjóri og DJ sem heldur utan um kvöldið frá upphafi til enda. Með húmor og réttu tónlistina sér hann til þess að dagskráin flæði og stemningin haldist í botni.

Rikki G sameinar veislustjórn og DJ í einum pakka og getur því tekið utan um heildarstemninguna á viðburðinum. Sem veislustjóri heldur hann dagskránni gangandi, kynnir atriði og heldur gestum við efnið, áður en hann færir sig yfir á DJ-boothið og heldur kvöldinu áfram á dansgólfinu.

Rikki G hentar sérstaklega vel fyrir árshátíðir, fyrirtækjaviðburði, brúðkaup og aðrar veislur þar sem mikilvægt er að hafa einn aðila sem getur bæði stýrt kvöldinu og séð um tónlistina.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, brúðkaupsafmæli, útskriftir, hátíðir, einkasamkvæmi

Senda fyrirspurn