Rokkkór Íslands er kór sem er vanur að fara óhefðbundnar leiðir. Hann skipar um 50 söngvara og hefur starfað með ýmsu tónlistarfólki eins og td. Foreigner, VÆB, Röggu Gísla, Eiríki Haukssyni, Sniglabandinu, Huldumönnum, Power Paladin ofl. Kórinn vekur alltaf mikla lukku í samkvæmum sem hann mætir í og er alltaf fjör þar sem hann er. Lagalisti kórsins er mjög stór og hefur að geyma mikið úrval af klassískum rokkperlum sem allir þekkja.
hátíðir, einkasamkvæmi, brúðkaupsafmæli, afmæli, útskriftir, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, brúðkaup