Siggi Photography

Ljósmyndun og myndbandsgerð · Sauðárkrókur

Um þjónustuna

Fagleg brúðkaups og viðburðarljósmyndun

Ég er ljósmyndari með yfir 7 ára reynslu af viðburðum af öllu tagi. Ég sérhæfi mig í brúðkaupum en tek einnig að mér aðra viðburði allt frá tónleikum og veislum yfir í íþróttaviðburði.

Hef unnið verkefni fyrir alla stærstu miðla landsins og vinn bæði með uppstilltar myndir í bland við fallegu augnablikin sem aðrir taka kannski ekki eftir.

Í brúðkaupum vil ég vera flugan á veggnum sem nær öllum augnablikunum bæði stórum og litlum. Þegar maturinn og seinasta lagið klárast þá áttu alltaf myndirnar til að hlýja þér við og halda minningunni á lífi.

Hentar fyrir

brúðkaup, gæsa- og steggjapartý, einkasamkvæmi, hátíðir, brúðkaupsafmæli

Senda fyrirspurn