Veislusalir á Sjálandi
Fullkomin aðstaða fyrir þinn viðburð
Að finna rétta veislusalinn getur skipt sköpum þegar kemur að vel heppnuðum viðburði. Hvort sem um ræðir brúðkaup, afmæli, árshátíð, fermingu, erfidrykkju, fyrirtækjaviðburð eða einkasamkvæmi, þá býður Sjáland upp á fallega sali, fyrsta flokks veitingaþjónustu og framúrskarandi aðstöðu í einstakri náttúru við sjávarsíðuna.
Tveir glæsilegir veislusalir fyrir viðburði af öllum stærðum og gerðum
Við bjóðum upp á tvo veislusali sem hægt er að laga að mismunandi tilefnum:
Veislusalurinn tekur allt að 200 manns í sæti. Hann er útbúinn vönduðum ljósabúnaði, skjávarpa og hljóðkerfi sem hentar vel fyrir tónlist, ræður og skemmtiatriði.
Bistro salurinn er fullkominn fyrir minni veislur og tekur 80 manns í sæti og allt að 150 manns standandi. Hann er með hátölurum sem auðvelt er að tengja við tónlistarkerfi.
Báðir salirnir eru með sérinngang og aðgang að útisvæði sem gefur gestum aukið rými og skemmtilega upplifun.
Í hvorum sal er einnig bar, fatahengi og salerni, sem tryggir hámarksþægindi fyrir gesti.
Fyrir stærri viðburði er hægt að sameina salina í eitt stórt rými þar sem Sjáland breytist í stóran veislusal.
brúðkaup, afmæli, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, skírnir, brúðkaupsafmæli, útskriftir