Í íþróttahúsi Kaplakrika er stór veislusalur (Sjónarhóll) sem tekur 240 manns í sæti. Hægt er að skipta honum upp í 2 sali og tekur vestari helmingur ( nær fótboltavelli ) 90 – 100 manns í sæti en salurinn nær bílastæðunum að austan tekur 140 manns í sæti.
Rúmgott eldhús og bar fylgir útleigu, borðbúnaður fyrir 250 manns og í eldhúsinu eru einnig 2 ísskápar, ofn, uppþvottavél o.fl.
Móttökurými er fyrir framan salina, gott anddyri með fatahengi og þar eru þrjú salerni þar af eitt fyrir fatlaða. Hægt er að ganga út úr veislusölunum að norðanverðu (snýr að fótboltavellinum) ef einhverjir þurfa að reykja eða fá sér frískt loft.
brúðkaup, afmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, hátíðir, skírnir, brúðkaupsafmæli