Skíðaskáli

Veislusalur · Sveitarfélagið Ölfus

Um þjónustuna

Skíðaskálinn í Hveradölum er einstakur veislustaður í fallegri náttúru, aðeins 30 km frá Reykjavík. Fullkomin aðstaða fyrir viðburði, fundi og góðar stundir í góðum félagsskap.

Í aðeins 30 km fjarlægð frá Reykjavík leynist náttúruperlan Hveradalir, þar sem Skíðaskálinn stendur á einu virkasta hverasvæði landsins. Skíðaskálinn í Hveradölum hefur löngum skipað sérstakan sess í hugum landsmanna, þekktur fyrir rómantískt og einstakt umhverfi.
Skíðaskálinn er kjörinn staður til að njóta góðs félagsskapar í fallegri náttúru. Húsið rúmar allt að 350 manns í sæti, skipt niður í fjóra glæsilega sali sem taka frá 50 upp í 170 gesti. Gamla stofan, Koníaksstofan, Arinstofan og Betri stofan eru allar vel búnar fyrir veislur og fundi af ýmsum toga.
Aðstaðan hentar einstaklega vel fyrir afmæli, árshátíðir, brúðkaup og fermingar. Við leggjum metnað í að gera hverja samkomu eftirminnilega og bjóðum upp á sérsniðin verðtilboð fyrir bæði smærri og stærri hópa. Með áratuga reynslu í veisluþjónustu og matreiðslu aðstoða matreiðslumeistarar okkar við að velja hinn fullkomna matseðil - hvort sem um er að ræða glæsilegan hátíðarmat eða léttan pinnamat. Þá erum við einnig afar stolt af vönduðum vínlista okkar.
Fyrirtæki geta einnig haft Skíðaskálann út af fyrir sig, hvort sem er í hálfan eða heilan dag, með aðgang að öllum sölum. Fjölmörg fyrirtæki hafa nýtt sér þessa aðstöðu fyrir fundi og vinnustofur, þar sem kyrrðin og einstakt andrúmsloft stuðla að einbeitingu og árangri.
Á staðnum er fullkomið hljóðkerfi, þráðlausir hljóðnemar og nettenging, ásamt skjávarpa, sýningartjaldi og flettitöflu - allt innifalið í leiguverði. Einnig er hægt að leigja annan búnað eftir þörfum. Við getum jafnframt aðstoðað við skipulagningu rútuferða og útvegað tónlistarmenn eða skemmtidagskrá eftir óskum.
Við erum opin fyrir öllum hugmyndum og leggjum okkur fram við að uppfylla óskir viðskiptavina. Ekki hika við að hafa samband – við hlökkum til að heyra frá þér.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, erfidrykkjur, skírnir, brúðkaupsafmæli, hátíðir

Senda fyrirspurn