Á neðri hæð veitingastaðarins Snaps er hlýlegt rými fyrir veislur, partý, starfsmannagleði eða fundi. Sitjandi borðhald, snittur og pinnamatur - þitt er valið! Salurinn kemur með mat, drykk og fullri þjónustu.
Þessi fallegi salur tilheyrir veitingastaðnum Snaps, þekktum mat- og vínbar á höfuðborgarsvæðinu og býður upp á hlýlegt umhverfi fyrir hvers kyns viðburði. Pláss er fyrir allt að 45 manns í sæti eða 50 standandi. Í salnum er 65" sjónvarp sem auðvelt er að nota sem skjá.
Hægt er að velja á milli hópamatseðil eða hlaðborði með pinnamat og snittum.
Hentugur fyrir:
• Einkakvöldverði og afmæli
• Fyrirtækjaviðburði og kynningar
• Brúðkaupsveislur og fjölskyldusamkomur
• Kynningarfundi með mat
Sendu okkur línu og við setjum saman fallega veislu fyrir þig.
brúðkaup, afmæli, gæsa- og steggjapartý, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, skírnir, brúðkaupsafmæli