Sumac sækir innblástur frá Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Það sem einkennir staðinn er eldur, framandi krydd og fjölbreytileiki.
Sumac: djúprauð villt ber sem vaxa víða í Miðausturlöndum og við Miðjarðarhaf – eru síðan sólþurrkuð. Sumac stýrir björtum sítruskeimi sem er ómissandi í matseld Miðausturlanda.
Eldhús: Þráinn Freyr Vigfússon ásamt Eyþóri Freyr Haraldssyni hafa hannað hrjúfan og fágaðan matseðil með sterkum innblæstri frá seiðandi stemningu Beirút í Líbanon og tælandi áhrifum frá Norður Afriku.
Matseðill: óspillt ferskt hráefni úr íslenskri náttúru matreitt undir áhrifum Miðausturlanda. Brögð einkennast af eldgrilluðum réttum, fjarrænum og framandi kryddum.
brúðkaup, afmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, einkasamkvæmi, erfidrykkjur, skírnir, brúðkaupsafmæli, útskriftir