Hæ!
Ég heiti Sunna og vinn bæði sem DJ og ljósmyndari, meðal annars í öllum helstu tegundum viðburða og hef áralanga reynslu af hvoru tveggja.
Ég hef starfað sem DJ síðan 2012, fyrst á skemmtistöðum en undanfarin àr hef ég nær einungis komið fram í einkasamkvæmum svo sem brúðkaupum, árshàtíðum, afmælum og vinnustaðaveislum. Mér finnst skemmtilegast þegar dansgólfið dúar svo èg elska að sérsníða playlista fyrir hvern og einn viðburð.
Hvað ljósmyndun varðar fór ég út í hana af krafti þegar ég hóf nàm við Ljosmyndaskólann 2019. Ég elska að mynda fólk svo brúðkaups- og viðburðaljósmyndun var rökrétt þróun samhliða stúdíó myndatökum. Í dag mynda ég lang mest af viðburðum og nýt þess í botn.
Ef þig vantar ljósmyndara eða DJ, jafnvel hvort tveggja, endilega heyrðu í mér!
brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, einkasamkvæmi, hátíðir, brúðkaupsafmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, útskriftir, skírnir