Sveppi krull veislustjóri sem kann að halda uppi fjörinu
Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi Krull, er einn þekktasti og reyndasti skemmtikraftur landsins.
Hvort sem um er að ræða árshátíð, fyrirtækjaveislu, afmæli, brúðkaup, gala, jólahlaðborð eða annan viðburð, þá kemur Sveppi með reynslu, húmor og gott flæði sem hjálpar gestum að slaka á og njóta kvöldsins.
Sem veislustjóri heldur Sveppi utan um dagskrána, kynnir atriði og ræðumenn, tengir saman dagskrárliði og bregður á leik þegar við á. Hann kann líka þá list að leyfa kvöldinu að njóta sín – því stundum þarf ekki meira en gott grín, rétta tímasetningu og smá óvæntan Sveppa.
Með Sveppa við stjórnvölinn færðu veislustjóra sem hefur áratuga reynslu af því að skemmta fólki á öllum aldri og skapa létta og skemmtilega stemningu.
Þú skipuleggur viðburðinn – Sveppi sér um að halda utan um fjörið.
brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, hátíðir, brúðkaupsafmæli, útskriftir