Sykursalur er veislu- og fundarsalur í Grósku í Vatnsmýri, í þægilegu göngufæri frá miðbæ Reykjavíkur.
Sykursalur tekur um 180 manns í sæti eða 200 manns í standandi veislur, en hentar einnig vel fyrir minni veislur.
Salurinn er glæsilega hannaður af HAF Studio og borð og stólar eru bæði falleg og þægileg.
Salurinn er mjög vel búinn tækjum, þar er að finna fullkomið hljóðkerfi fyrir tal og tónlist, ljósabúnað til að skapa réttu stemninguna fyrir viðburðinn ásamt myndvarpa og sýningartjaldi.
Aðgengi að salnum er gott en þar er bæði stórt bílaplan fyrir framan og bílakjallari undir húsinu. Salurinn er með sér inngangi.
Salurinn er leigður út með vínveitingum fyrir hvers kyns veislur og viðburði og hefur leyfi til klukkan 03:00.
Aðstaðan er einnig tilvalin fyrir námskeið, fyrirlestra og kennslu.
brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, gæsa- og steggjapartý, einkasamkvæmi, skírnir, brúðkaupsafmæli, erfidrykkjur