Ljósmyndaþjónusta. Portraitmyndir, starfsmannamyndatökur, gæludýramyndatökur, brúðarmyndir, fermingar, börn, fjölskyldur, öll velkomin. Vettvangsmyndatökur og allskonar viðburðir.
Ég heiti Sirrý Klemenzdóttir og er fædd í október 1979. Ég lærði ljósmyndun við tækniskólann (Iðnskólann) og var í starfsnámi hjá Rut ljósmyndara (Ljósmyndir Rutar). Árið 2004 tók ég sveinsprófið og fluttist til Englands sama ár og bjó þar í tvö ár. Í Englandi starfaði ég sem ljósmyndari á portraitstofu og öðlaðist þar mikla reynslu og þróaði minn eigin stíl. Stofan hét Olan Mills og það var alltaf nóg að gera og mikið fjör.
Frá því ég uppgötvaði áhugann min fyrir ljósmyndun þá hefur mér alltaf fundist langskemmtilegast að taka myndir af fólki og dýrum. Frá því ég opnaði stofuna mína 2008 hef ég fengið fullt af yndislegu fólki og dýrum til mín í myndatökur.
brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, gæsa- og steggjapartý, einkasamkvæmi, skírnir, brúðkaupsafmæli