Við viljum gera þetta eins þægilegt og mögulegt er! Við komum til þín með allan búnaðinn, blásum boltana upp, útskýrum reglurnar fyrir hópnum og gírum okkur upp. Það eina sem þú þarft að gera er að velja draumaleikvanginn. Áður en þið hlaupið af stað setjum við tónlist á fóninn og hefjum leikinn!
Við erum með tvær stærðir af boltum, annars vegar fyrir börn og unglinga og hins vegar fyrir fullorðna. Það eykur bæði öryggi og þægindi.
Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og viljum að þitt partý sé eins vel heppnað og mögulegt er. Er til betri leið en smá hopp og skopp á ykkar heimavelli? Eflum lýðheilsuna!
brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, gæsa- og steggjapartý, einkasamkvæmi, hátíðir, skírnir, brúðkaupsafmæli, útskriftir