LASERTAG Á ÞÍNUM HEIMAVELLI
Við viljum gera þetta eins þægilegt og mögulegt er! Við komum til þín með allan búnaðinn, útskýrum reglurnar fyrir hópnum og gírum okkur upp. Það eina sem þú þarft að gera er að velja draumaleikvanginn.
Hvort sem það er á vinnustaðnum, í skólanum, fimleikasal eða líkamsræktarstöð, úti í garði, götu, róló eða úti í skógi, þá færum við þér lasertag byssurnar á draumastaðinn þinn. Að lokum setjum við tónlist á fóninn og hefjum leikinn!
Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og viljum að þitt partý sé eins vel heppnað og mögulegt er. Er til betri leið en byssó með alvöru búnaði á ykkar heimavelli?
afmæli, barnaafmæli, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, skírnir, brúðkaupsafmæli, útskriftir