Tveir miðaldra pabbar

Tónlist og hljóð · Hafnarfjörður

Um þjónustuna

Tveir miðaldra pabbar sem vilja komast út um helgar.

Tryggvi er að safna fyrir nýju fellihýsi fyrir fjölluna og hárafgræðslu til að verða eins og Bubbi. DJ Stjáni er að safna fyrir tannígræðslu í Búdapest og borga upp pulsuhundinn sem hann keypti handa konunni sinni á raðgreiðslum.

Saman bjóða þeir upp á skemmtilega viðburðastjórn þar sem húmor, leikir, sprell og tónlist fara saman. Með yfir 20 ára reynslu halda þeir stemningunni uppi, fá gesti til að taka þátt og skapa viðburð sem verður lengi í minnum hafður.

Þegar veislustjórninni lýkur tekur DJ Stjáni við og sér um dansgólfið fram á nótt.

Hentar fyrir

brúðkaup, brúðkaupsafmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, einkasamkvæmi, útskriftir

Senda fyrirspurn