VÆB

Tónlist og hljóð · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Væb (stílað sem VÆB) er íslenskt rafrænt tónlistardúó sem samanstendur af bræðrunum Matthíasi Davíð Matthíassyni (f. 7. desember 2004) og Hálfdáni Helga Matthíassyni (f. 4. júní 2003). Nafnið er skammstöfun fyrir „Virðing, æðruleysi og bullandi stemning!“ samkvæmt Matthíasi og er einnig tilvísun í enska orðið vibe.[1]

Þeir voru fulltrúar Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2025 með lagið „Róa“ eftir að hafa unnið Söngvakeppnina 2025. Þeir höfðu áður tekið þátt í Söngvakeppninni 2024 með lagið „Bíómynd“ og lentu í 4. sæti.

Væb bræðurnir voru fengnir til að semja og flytja lag fyrir Barnamenningarhátíðina í Reykjavík árið 2026 sem var byggt á svörum barna úr 4.bekk grunnskólum Reykjavíkur um hvað samkennd og samfélag þýddi fyrir þeim. Úr því varð lagið „Sama hver það er“ sem þeir fluttu í beinni útsendingu á RÚV á opnunarviðburði hátíðarinnar í Hörpunni.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, gæsa- og steggjapartý, einkasamkvæmi, hátíðir, skírnir, brúðkaupsafmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, útskriftir, erfidrykkjur

Senda fyrirspurn