Versalir, menningar- og veislusalir
Versalir, menningar- og veislusalir eru staðsettir í Ráðhúsi Ölfuss.
Þar eru 2 salir sem hægt er að leigja fyrir fundi, ráðstefnur, veislur, tónleika eða aðra viðburði.
Á staðnum eru skjávarpar, hljóðkerfi, eldhús með leirtaui og áhöldum og borð og stólar fyrir allt að 300 gesti.
Stærri salurinn tekur 250 manns í sæti.
Minni salurinn tekur 90 manns í sæti.
Ef allt húsið er leigt er hægt að hafa 300 manns í sæti.
Einnig er hægt að leigja aðeins anddyrið en þar er hægt að hafa standandi veislu fyrir um 50 manns.
brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, hátíðir, skírnir, brúðkaupsafmæli, útskriftir