Vigdísarhús
Í Vigdísarhúsi er bjartur og rúmgóður salur með fallegu útsýni yfir fjöll og sveitir Suðurlands. Salurinn rúmar um 120 gesti í sæti en allt að 150 manns fyrir standandi viðburði.
Salurinn er búinn fullbúnu eldhúsi, borðbúnaði og mögulegt er að leigja dúka fyrir hátíðleg tilefni. Þar er einnig hljóðkerfi sem hentar bæði fyrir ræður og tónlistarflutning, notalegt setusvæði með leðursófum, myndvarpi og sýningartjaldi.
Leiga á salnum felur ekki í sér veitingaþjónustu. Gestir geta því komið með eigin veitingar eða séð sjálfir um matargerð á staðnum.
Vigdísarhús hentar vel fyrir brúðkaup, afmæli, fermingar og aðrar fjölskylduveislur, auk þess sem aðstaðan nýtist fyrirtækjum fyrir fundi, ráðstefnur, námskeið og ýmsa viðburði.
brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, brúðkaupsafmæli, skírnir, útskriftir