Vöffluvagninn

Veisluþjónusta · Reykjavík

Um þjónustuna

Vöffluvagninn kemur með ljúffengar vöfflur í veisluna. Vöffluvagninn mætti fyrst með belgískar vöfflur á Lækjartorg í maí 2001 og hefur verið á götunum allar götur síðan. Í dag erum við á þeytingi í veislur og á útihátíðir um land allt. Veisluþjónustan kemur með ljúffengar vöfflur beint heim að dyrum. Í boði eru allar vöfflur á matseðli (sjá hér fyrir neðan). Að auki er hægt að panta heita og kalda drykki eftir samkomulagi. Vagninn þarf ekki aðgang að rafmagni og er því mjög sveigjanlegur. Verð í veisluþjónustu er 1390 kr/vöfflu, allt meðlæti innifalið. Afsláttur 10% fyrir 80-150 stk og 15% fyrir 150+ stk. Aðeins er greitt fyrir afgreiddar vöfflur og þjónustugjald innifalið. Lágmarkspöntun er 40 vöfflur. Innan höfuðborgarsvæðis er akstur til og frá innifalinn. Utan þess er greitt akstursgjald 4900 kr. fyrir hverja 50 km.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, gæsa- og steggjapartý, einkasamkvæmi, hátíðir, brúðkaupsafmæli

Senda fyrirspurn