Hæ! Ég heiti Stefanía og er sjálfstætt starfandi förðunarfræðingur. 💄
Ég tek að mér förðun fyrir öll tilefni, hvort sem það er fyrir brúðkaup, fermingu, árshátíð, útskrift, myndatöku, partý eða einfaldlega þegar þig langar að gera vel við þig. 🤍
Ég útskrifaðist sem förðunarfræðingur árið 2022 frá Makeup Studio Hörpu Kára og hef mikla ástríðu fyrir förðun og því að hjálpa hverri og einni að líða sem allra best í eigin skinni.
Markmiðið mitt er að skapa förðun sem hentar þér, þínum stíl og tilefninu – hvort sem þú vilt náttúrulegt og létt „glowy“ lúkk eða meira glam og áberandi förðun. ✨
📩 Sendu mér skilaboð fyrir bókun eða frekari upplýsingar.
Ég hlakka til að fá að farða þig! 💕
brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, útskriftir, skírnir og fermingar, árshátíðir
Makeup By Stefanía Melsteð er hár- og förðunarþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.