Förðunarþjónusta fyrir öll tilefni
Reykjavík Makeup School er elsti og stærsti förðunarskóli landsins, stofnaður árið 2013. Frá stofnun hafa yfir 1.000 nemendur útskrifast frá skólanum og hefur Reykjavík Makeup School fest sig í sessi sem leiðandi skóli í menntun förðunarfræðinga á Íslandi.
Eigendur skólans eru Heiður Ósk Eggertsdóttir og Ingunn Sigurðardóttir, förðunarfræðingar, viðskiptafræðingar og stofnendur íslenska snyrtivörumerkisins Chilli in June. Þær hafa áralanga reynslu úr förðunar- og snyrtivörubransanum ásamt reynslu af vöruþróun, efnissköpun og fyrirtækjarekstri.
Við Reykjavík Makeup School leggjum við áherslu á fagmennsku, metnað, sköpun og persónulega kennslu. Kennarateymi skólans samanstendur af starfandi fagfólki með fjölbreytta reynslu úr ólíkum greinum förðunarheimsins, meðal annars tísku og editorial, sjónvarpi og kvikmyndum, brúðarförðun, draglist, samfélagsmiðlum og snyrtivörubransanum.
brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir
Reykjavík Makeup School er hár- og förðunarþjónusta í Reykjavík og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.