Marínó Flóvent Ljósmyndari

Ljósmyndun og myndbandsgerð · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Ég hef starfað sem ljósmyndari í yfir 16 ár og frá 2018 hef ég tekið yfir 100 brúðkaup — allt frá litlum og persónulegum athöfnum upp í stór brúðkaup með fjölskyldu og vinum.

Þessi reynsla skiptir máli. Brúðkaupsdagurinn gerist bara einu sinni og augnablikin verða ekki endurtekin.
Ég lært að vera skrefi á undan, sjá augnablikin áður en þau gerast og vita hvenær ég á að stíga inn og leiðbeina — og hvenær ég á einfaldlega að halda mig til hlés og leyfa hlutunum að gerast.

16 ára reynsla hefur kennt mér að bestu myndirnar verða ekki alltaf til þegar fólk horfir í myndavélina. Oft eru það augnablikin þar á milli.

Það eru augnablikin sem ég vil varðveita fyrir ykkur.

Þjónustupakkar

Hentar fyrir

brúðkaup

Marínó Flóvent Ljósmyndari er ljósmyndaþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri ljósmyndarar á höfuðborgarsvæðinu