Bergur Ebbi

Í umboði Móðurskipsins

Skemmtun · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Bergur Ebbi er íslenskur listamaður með mikla reynslu sem uppistandari, leikari, fyrirlesari og rithöfundur. Meðal umfjöllunarefna í útgefnum verkum Bergs Ebba er tæknisaga og áhrif hennar á sjálfsmynd fólks, stjórnmál, valdajafnvægi, breytt heimsmynd, tíska og tíðarandi.

Bergur Ebbi er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með MDes gráðu í Strategic Foresight and Innovation frá OCAD Háskólanum í Toronto í Kanada auk þess að leggja stund á lögfræði og listasögu við Université de Cergy Pontoise í París. Meðal verka Bergs Ebba eru bækurnar Stofuhiti (2017) og Skjáskot (2019). Bergur Ebbi hefur fengist við gamanleik í sketsaþáttum og einnig tekið að sér alvarlegri hlutverk, meðal annars í þáttunum Brot og kvikmyndinni Skjálfta.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, einkasamkvæmi, hátíðir, árshátíðir, útskriftir

Bergur Ebbi er skemmtiþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri skemmtikraftar á höfuðborgarsvæðinu