Ebba Sig - skemmtiþjónusta á höfuðborgarsvæðinu

Ebba Sig

Í umboði Móðurskipsins

Skemmtun · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Ebba Sig er leikkona, uppistandari og skemmtanastýra. Hún útskrifaðist af leikarabraut frá Rose Bruford Collage í London árið 2015 og setti í kjölfarið upp Einleikinn Guðmóðirin á Kaffi Laugalæk. Þar var Ebba í aðalhlutverki en auk þess að leika, skrifaði hún verkið og framleiddi. Sýningin vakti mikla athygli og var uppselt öll kvöld. Frá því hefur Ebba reglulega verið með uppistand, á Kaffi Laugalæk og Hard Rock svo dæmi séu nefnd en einnig í ýmsum einkasamkvæmum og fyrirtækjaskemmtunum. Ebba er einnig þaulvön veislustýra.

Uppistand:
Það er sjaldan langt í grínið og á Ebba það til að stíga á svið í Þjóðleikhúskjallaranum með grínhópnum Eldklárar og eftirsóttar eða æfingarhóp Improv Ísland. Hún mætir á viðburði, árshátíðir og í veislur með prógramið sitt.

Pub quiz og Partý karaoke:
Pub quiz og Partý karaoke er í sérstöku uppáhaldi, en Ebba hefur stýrt slíkum skemmtunum um allt land. Pub quiz má sníða að hópum að öllum stærðum og aldri.

Myndir

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, árshátíðir, útskriftir

Ebba Sig er skemmtiþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri skemmtikraftar á höfuðborgarsvæðinu