Guðmundur Einar

Í umboði Móðurskipsins

Skemmtun · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Guðmundur Einar vakti athygli sem gamanleikari í sjónvarpsþáttunum Kanarí. Hann hefur leikið ótal sýningar með spunaleikhópnum Improv Ísland. Hann hefur leikið ýmis hlutverk í sjónvarpsþáttum og auglýsingum.

Skemmtikraftur

Guðmundur Einar er nýr og vinsæll uppistandari. Sýningin hans Lítill töffari sló í gegn og var sýnd um allt land.

Guðmundur Einar er þaulreyndur veislustjóri sem semur nýtt efni fyrir hvert tilefni auk vinsælla leikja og atriða.

Árshátíðarmyndbönd

Guðmundur Einar er leikstjóri (Kanarí, Sveitarómantík) og tökumaður (Berglind Festival) og getur gert fagleg myndbönd fyrir viðburðinn.

Hann hefur unnið Íslensku Sjónvarpsverðlaunin sem leikstjóri og framleitt þætti eins og Vikuna með Gísla Marteini.

Fyrirlesari

Guðmundur Einar hefur sýnt spuna með Improv Ísland í 10 ár og kennt fjölmörg spunanámskeið.

Guðmundur deilir reynslu sinni í fyrirlestrum og vinnustofum. Helstu umfjöllunarefnin eru jákvæðni, samvinna, skapandi núvitund, fagmennska og galdurinn í óvissunni.

Umsagnir

Ég grét úr hlátri

- Vigdís Hafliða

Upprisa á miklum talent í uppistandi

- Bergur Ebbi

Ég hló og hló og hló….edrú

- Snjólaug Lúðvíks

Fyndin sýning hjá fyndnum manni

- Berglind festival

Fjölbreytt, ferskt, frumlegt og fyrst og fremst fyndið!

- Jóhann Alfreð

Hentar fyrir

afmæli, einkasamkvæmi, hátíðir, brúðkaup, árshátíðir

Guðmundur Einar er skemmtiþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri skemmtikraftar á höfuðborgarsvæðinu