Hákon Örn Helgason

Í umboði Móðurskipsins

Skemmtun · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Hákon Örn Helgason er sviðslistamaður, grínisti og handritshöfundur.

Hákon útskrifaðist af Sviðshöfundabraut LHÍ vorið 2021 en útskriftarsýning hans, Jesú er til, hann spilar á banjó, fékk framhaldslíf í Tjarnarbíó haustið 2022 þar sem hún fékk lof fyrir ferskleika og fyndni.

Hákon er meðlimur í tveimur grínhópum sem sýna reglulega á leiksviðum Reykjavíkur; Uppistandshópnum VHS og Improv Ísland. Uppistandshópurinn VHS hefur staðið fyrir fjölmörgum uppistandssýningum í Tjarnarbíó síðan 2019 og fóru af stað með nýja sýningu í byrjun árs 2023. Einnig hefur Hákon meðskrifað og leikstýrt markaðsefni og sjónvarpsþáttum hópsins. Hákon hefur lagt stund á spuna síðan 2016 og sýnt með Improv Ísland í Þjóðleikhúskjallaranum síðan 2019.

Hákon hefur sýnt sviðsverk víða, t.d. í Ásmundarsal og í Umbúðalaust verkefni Borgarleikhússins. Um þessar mundir vinnur Hákon að nýrri uppistandssýningu, skrifum á nýrri sjónvarpsseríu og leiksýningu.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, árshátíðir, hátíðir

Hákon Örn Helgason er skemmtiþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri skemmtikraftar á höfuðborgarsvæðinu