Inga Steinunn Henningsdóttir

Í umboði Móðurskipsins

Skemmtun · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Inga Steinunn er sviðshöfundur, spunaleikkona og uppistandari.

Hún frumsýndi uppistandið sitt Allt í góðu lagi árið 2023 og fékk góðar viðtökur. Í kjölfarið á því frumsýndi hún sýninguna Vangadans, uppistandssýning í Þjóðleikhúskjallaranum ásamt Hákoni Erni Helgasyni.

Hún hefur sýnt með spunaleikhópnum Improv Ísland frá árinu 2019. Einnig hefur hún verið að kenna spuna; námskeið og sjáfstæðum spunaleikhópum.

Hún skrifaði sketsþættina Viðundur ásamt Björgu Steinunni sem voru frumsýndir í Bíó Paradís.

Hægt er að heyra í Ingu til þess að vera með uppistand, kynnir, handritsskrif, sketsaskrif, leika, kenna spuna og vera með hópefli.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, hátíðir, árshátíðir

Inga Steinunn Henningsdóttir er skemmtiþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri skemmtikraftar á höfuðborgarsvæðinu