Margrét Erla Maack - skemmtiþjónusta í Reykjavík

Margrét Erla Maack

Skemmtun · Reykjavík

Um þjónustuna

Margrét Erla Maack er skemmtikraftur, karaokeskrímsli, spurningaljón, burleskdís, danskennari, plötusnúður.... og hefur þar að auki hóp af sirkus- burlesk- og furðuskemmtikröftum á sínum snærum,

Vantar þig: Pubquiz fyrir vinnustaðinn, twerk-kennslu fyrir vinahópinn, kabarettsýningu fyrir partý vinahópsins, karaokeutanumhald í happy hour í vinnunni, burlesk-danskennslu í gæsapartýið, sundballettkennslu fyrir vinahópinn, Magic Mike-kennslu í steggjunina eða DJ fyrir partýið þitt sem vílar ekki fyrir sér að stökkva út á gólf með danskennslu? Ertu að fara að gifta þig og vantar manneskju sem er veislustjóri, plötusnúður og með leyfi til að framkvæma löglega hjónavígslu? Ertu að halda árshátíð erlendis og vantar manneskju sem er allur pakkinn, ekki bara veislustjóri, plötusnúður og getur leitt matarferðir um allar helstu borgir Evrópu, heldur líka kennt sundballett í lauginni? Eða bara eitthvað annað sjónrænt fjör? Þá er Margrét Erla Maack konan sem þú ert að leita að.

Myndband

Aðstaða og þjónusta

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, erfidrykkjur

Margrét Erla Maack er skemmtiþjónusta í Reykjavík og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri skemmtikraftar á höfuðborgarsvæðinu