Leikari og handritshöfundur.
Ólafur Ásgeirsson (1990) útskrifaðist af Leikarabraut Sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands árið 2015 og fluttist í kjölfarið til New York þar sem hann lærði Michael Chekhov leiklistartækni í The Michael Chekhov Acting Studio og spunatækni við UCB spunaskólann. Ólafur er einn stofnenda Leikfélagsins PóliS sem gerir leikhús á pólsku fyrir pólska áhorfendur á Íslandi. Ólafur er starfandi leiklistarkennari á öllum skólastigum og hefur sýnt vikulegar spunasýningar í Þjóðleikhúskjallaranum með Improv Ísland frá árinu 2016.
brúðkaup
Ólafur Ásgeirsson er skemmtiþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.