Ragnari Ísleifi er margt til lista lagt. Fyrir utan afbragðs leiklistar- og leikstjórnarhæfileika er hann margreyndur veislustjóri og veit fátt skemmtilegra en að stýra góðum gleðskap.
Hvernig verðum við gömul?
45 mínútna vinnustaðafyrirlestur á léttu nótunum þar sem þátttakendur æfa sig í að vera gamlir.
Hvernig verðum við gömul? er léttur og skemmtilegur fyrirlestur með húmorísku ívafi sem hentar vel vinnustaðateymum til hópefli og virkja sköpunar- og lífskrafinn!. Hann er fluttur af Hrefnu Lind Lárusdóttur og Ragnari Ísleifi Bragasyni og virkar sem hvatning fyrir fólk á öllum aldri til að rannsaka líf sitt. Við munum sýna æfingar og fá þátttakendur í lið með okkur meðan á fyrirlestrinum stendur til að öðlast bæði líkamlegan og andlegan skilning á því hvernig það er að verða gamall og kosti þess. Í raun og veru æfa þátttakendur sig í að vera gamlir og öðlast með því nýtt sjónarhorn.
Fyrirlestrinum er einnig ætlað að varpa sýnileika á líf eldra fólks og hversdagslíf þeirra. Okkur finnst mikilvægt að stíga inn í þá staðreynd að við munum eldast og styrkja okkur í því sambandi fremur en að forðast tilhugsunina um ellina. Eftir að hafa hlýtt á fyrirlesturinn og tekið þátt í æfingunum er það von okkar að fólki líði betur með aldur sinn og hlakki til að taka á móti ellinni.
Rétt er að taka fram að okkur þykir mikilvægt að nálgast efniviðinn á léttu nótunum þótt vissulega sé verið að vinna með viðfangsefni sem sumir ef til vill forðast að hugsa um dags daglega. Sem dæmi má nefna að í fyrirlestrinum komum við inn á hina ýmsu kosti þess að eldast, eins og til dæmis þá staðreynd að geta leyft sér að svindla sér fram fyrir í biðröð og þykjast svo bara vera utan við sig og gamall. Eins getur gamalt fólk leyft sér að leysa vind við hvaða kringumstæður sem er án eftirmála.
brúðkaup, útskriftir, árshátíðir, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, einkasamkvæmi
Ragnar Ísleifur Bragason er skemmtiþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.