Sigríður Ásta Olgeirsdóttir

Í umboði Móðurskipsins

Skemmtun · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Marlene Dietrich skemmtun

Leikararnir og tónlistarfólkið Sigríður Ásta og Jóhann Axel slógu nýverið í gegn með sýningunni um Marlene Dietrich í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll.

Þau bjóða upp á atriði sem færa veisluna þína upp á næsta stig

Klassísk DIETRICH

Klassískt og grand skemmtiatriði. Sigríður og Jóhann flytja nokkur af vinsælustu lögum Marlene Dietrich og segja stuttlega frá sögu goðsagnarinnar.

(20 mín)

Dirty DIETRICH

Fyrir þau sem vilja aðeins meiri spennu. Nokkur af heitari lögum Dietrich. Ennþá grand en fjaðrir, netasokkabuxur og leikhússígarettur koma einnig við sögu.

(20 mín)

Lifandi dinnermússík og Jólahlaðborð

Sigríður og Jóhann hafa um árabil spilað lifandi tónlist undir borðhaldi í veislum og á hlaðborðum.

(2 klst, hægt að lengja)

Sérsniðið tónlistaratriði

20 mínútna tónlistaratriði sem hentar veislunni þinni.

Viðbrögð áhorfenda hafa verið einróma:

„Dásamleg sýning, heillandi leikur og frábær söngur“

-Brynhildur Guðjónsdóttir, leikkona og fyrrverandi Borgarleikhússtjóri

„Jóhann algjörlega brilliant í öllum þeim litríku hlutverkum sem hann töfraði fram“

-Björk Guðmundsdóttir, leikkona

„Hvílíkur söngur!“

-Harpa Arnardóttir, leikkona og leikstjóri

„Stjarna er fædd!“

-Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur

„Sigríður Ásta er stórkostleg í hlutverki Dietrich!“

-Fannar Arnarsson, leikari

„"Heitasta" stykki borgarinnar þessa dagana.“

-Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur

„Fáséður kynþokki á íslensku leiksviði“

-Pálína Jónsdóttir, Sviðslistakona

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, árshátíðir

Sigríður Ásta Olgeirsdóttir er skemmtiþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri skemmtikraftar á höfuðborgarsvæðinu