Vigdís Hafliðadóttir

Í umboði Móðurskipsins

Skemmtun · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Vigdís Hafliðadóttir er menntuð í heimspeki en hefur komið víða við í lista- og grínheiminum.

Hún er þekktust fyrir störf sín í uppistandshópnum VHS, Improv Ísland og sem söngkona og textahöfundur FLOTT. Auk sviðsframkomu hefur hún leikið ýmis hlutverk í þáttum og kvikmyndum og komið að dagskrárgerð, auglýsingagerð og handritsskrifum. Vigdís var í handritsteymi Áramótaskaupsins 2022 sem hlaut Edduverðlaun fyrir “Skemmtiþátt ársins.” Hún vann einnig verðlaun fyrir “Texta ársins” á Íslensku tónlistarverðlaununum 2023.

Um þessar mundir er hún kynnir í Kappsmáli á föstudagskvöldum á RÚV.

Auk íslensku talar Vigdís ensku, ítölsku og er altalandi á sænsku.

Hentar fyrir

brúðkaup

Vigdís Hafliðadóttir er skemmtiþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri skemmtikraftar á höfuðborgarsvæðinu