Vilhelm útskrifaðist frá Háskóla Íslands með BA gráðu í heimspeki árið 2002. Flestar þekkja hann þó sem; Villa naglbít úr hljómsveitinni 200.000 naglbítum, Vísinda Villa, höfund Vísindabóka Villa, Villa úr Sveppa og Villa, veislustjórann Villa, fyrirlesarann Villa og/eða sjónvarpsmanninn Villa.
Villi hefur unnið sem dagskrárgerðarmaður í sjónvarpi og útvarpi í mörg ár, verið með sína eigin þætti og komið fyrir í öðrum.
Villi steig sín fyrstu skref í sjónvarpi árið 2000 í unglingaþáttunum AT sem sýndir voru á RÚV. Síðan þá má nefna þætti eins og Gettu betur (RÚV), Nei hættu nú alveg (Rás2/podcast),Toppstöðin (St2), Ameríski draumurinn (St2), Algjör Sveppi (St2) Út að grilla með Kára og Villa (S1), Bingó með Villa (S1) Hvernig sem viðrar. (RÚV) auk þessd að vera fastagestur í fjölmörgum öðrum og stýrt fjölda beinna útsendinga á öllum stöðvum.
Villi er höfundur metsölubókanna Vísindabækur Villa og var tilnefdur til íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir fyrstu bókina í þeirri ritröð auk þess að hljóta verðlaun bóksala fyrir þá bók.
Villi er þaulvanur veislustjóri og hefur unnið við það í fjöldamörg ár. Hann hefur komið víða við og nýtir þá reynslu í uppá sviði og í fyrirlestrum sínum, sem fjall um skapandi hugsun og samstarf. Villi brúar kynslóðabilið svo sannarlega því hans verk höfða til barna, unglinga og fullorðinna.
brúðkaup, afmæli, árshátíðir, einkasamkvæmi, hátíðir
Vilhelm Anton er skemmtiþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.