Skemmtikraftur, leikari & YouTuber!
Aron Valur er 20 ára íslenskur skemmtikraftur sem margir þekkja úr hlutverki Orra í þáttunum Skólinn eða af YouTube, þar sem hann heldur úti skemmtiþættinum Streymið. Báðir þættirnir hafa notið mikilla vinsælda meðal ungs fólks og gert Aron að kunnuglegu andliti á Íslandi.
Ballið sem krakkarnir muna eftir! 🔥
Aron býður upp á kraftmikið 30 mínútna partýshow sem hefur fengið frábærar viðtökur á grunnskólaböllum víða um land.
Hugmyndin kviknaði þegar Aron tók eftir því að á skólaböllum væru ekki alltaf allir með í stemningunni. Hann vildi skapa skemmtun þar sem sem flestir gætu tekið þátt, líka þeir sem eru að mæta á sín fyrstu böll eða finnst erfitt að stíga út á dansgólfið.
Showið gekk áður undir nafninu Partývélin en er nú bókað undir nafni Arons Vals. Nafnið er nýtt en hugmyndin og stemningin er það nákvæmlega sama!
Með míkrófóninn í hönd, vinsælustu lögin og fullt af orku fær Aron krakkana til að syngja, dansa og taka virkan þátt. Með honum er DJ Sakki, sem sér um tónlistina og heldur flæðinu gangandi allan tímann.
Þetta er ekki bara venjulegt DJ-sett, heldur 30 mínútna sérsníðað partýshow fyrir ykkar skóla þar sem markmiðið er að fá allan salinn með í stemninguna!
Showið er sérstaklega sniðið að grunnskólaaldri og aðlagað að hverjum aldurshópi.
Vantar meiri dagskrá á ballið? 🎧
Einnig er hægt að bæta við DJ-setti með DJ Sakka og fá þannig lengri dagskrá í einum pakka.
Aron og DJ Sakki geta sett saman sérsniðið tilboð eftir því hversu stóran hluta ballsins skólinn vill láta þá sjá um. Þannig verður skipulagið einfaldara og hægt að skapa samfellda og skemmtilega dagskrá fyrir krakkana.
Sjáðu stemninguna! 🎥
https://www.tiktok.com/@partyvelin/video/7614918476695735554](https://www.tiktok.com/@partyvelin/video/7614918476695735554
Bókanir og fyrirspurnir 📩
Áherslan er fyrst og fremst á grunnskólaböll og skólaárshátíðir, en einnig er hægt að senda fyrirspurnir vegna annarra viðburða.
Fyrir bókanir og verðtilboð er best að senda upplýsingar um dagsetningu, staðsetningu og áætlaða lengd viðburðarins.
Netfang: [aronvalurg@gmail.com]
Instagram: @aron.valur
Aron Valur, meira en skemmtiatriði! 🎉




barnaafmæli, árshátíðir
ARON VALUR er tónlistarþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.