Bergmál - tónlistarþjónusta í Hafnarfirði

Bergmál

Tónlist · Hafnarfjörður

Um þjónustuna

Hljómsveitin Bergmál:
- Selma og Elísa eru tvær með öllu -
Hvort sem þú þarft veislustjórnun, fallegan söng í athöfnum eða uppistand í tónlist þá gerum við þetta allt.
12 ára reynsla á bakinu, fagmennska fram í fingurgóma og ávallt með gleðina og húmorinn að vopni.

Við bjóðum upp á fjölbreytta skemmtun fyrir öll tilefni!

🎄 Dónajól
Skemmtilegasta jólaskemmtun Íslandssögunnar! Fáránlega fyndin jólalög, óvæntur húmor og neðanbeltisgrín sem setur sannarlega svip á jólahlaðborðið eða jólapartýið.

🎤 Dónatónar
Fáránlega fyndin tónlistarupplifun sem lífgar upp á hvaða veislu sem er. Húmor, tónlist og fjör í réttu hlutfalli – fyrir þau sem vilja eitthvað aðeins öðruvísi og ógleymanlegt.

🎶 Teprutónar
Falleg, frumsamin tónlist í bland við dass af léttum húmor og gleði. Frábær kostur fyrir þau sem vilja hlýlega stemningu, skemmtilega framkomu og tónlist.

❤️ Ljúfir tónar
Falleg og hugljúf tónlist sem skapa notalega stemningu og gefa veislunni persónulegan blæ. Tilvalið fyrir þau augnablik þar sem tónlistin fær að njóta sín.

🎙️ Veislustjórn
Við hjálpum þér að gera góða veislu enn betri! Með faglegri og lifandi veislustjórn sjáum við til þess að dagskráin flæði vel, gestirnir skemmti sér og stemningin haldist frá upphafi til enda.

✨ Ein veisla – endalausir möguleikar
Þú þarft ekki endilega að leita annað að skemmtiatriðum. Við getum sett saman heildstæða dagskrá þar sem tónlist, húmor og þátttaka gesta mynda eina skemmtilega heild.

Við hittumst, förum yfir hugmyndirnar og sníðum dagskrána að ykkar tilefni, gestum og óskum.

Meðal þess sem við getum boðið upp á:

Við finnum réttu blönduna fyrir ykkar veislu – hvort sem markmiðið er að fá gestina til að hlæja, syngja með, taka þátt eða dansa fram á kvöld.

Þið komið með tilefnið – við sjáum um skemmtunina!

Myndband

Myndir

Aðstaða og þjónusta

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, hátíðir, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir

Bergmál er tónlistarþjónusta í Hafnarfirði og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri tónlistaratriði á höfuðborgarsvæðinu