Védís Guðmundsdóttir - tónlistarþjónusta á höfuðborgarsvæðinu

Védís Guðmundsdóttir

Tónlist · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Védís er fjölhæfur og reynslumikill tónlistarmaður sem hefur verið á sviði nánast allt sitt líf. Hún leggur áherslu á persónulegan flutning, fjölbreytt lagaval og að skapa réttu stemninguna fyrir hvert tilefni.

Védís er fjölhæfur og reynslumikill tónlistarmaður sem hefur verið á sviði nánast allt sitt líf. Hún byrjaði að spila á hljóðfæri aðeins þriggja ára gömul og var fimm ára þegar hún kom fyrst fram opinberlega gegn greiðslu. Síðan þá hefur hún komið fram við fjölbreytt tilefni af öllum stærðum og gerðum, bæði sem sólóisti og með hljómsveitum.

Védís er með Bachelor- og Master-gráðu í Performance Studies frá University of West London í samstarfi við Royal College of Music, með klassíska þverflautu sem aðalhljóðfæri, og hefur einnig lagt stund á kórstjórnun. Auk þverflautunnar leikur hún á saxófón, gítar og píanó og syngur.

Hún fæst við fjölbreyttar tónlistarstefnur og hefur sérstaklega gaman af því að taka þekkt lög og útfæra þau á sinn hátt. Hún útsetur gjarnan efnið sjálf og leggur áherslu á að flutningurinn passi bæði tilefninu og stemningunni hverju sinni.

Reynslan spannar allt frá viðkvæmum og persónulegum stundum yfir í líflegar veislur og stærri viðburði. Hún hefur meðal annars leikið í yfir 100 brúðkaupum og um 400 jarðarförum, auk afmæla, móttaka, hátíða og fjölbreyttra skemmtana.

Eftir áratuga reynslu veit Védís að engir tveir viðburðir eru eins. Hún leggur því áherslu á að lesa aðstæður vel og skapa réttu stemninguna — hvort sem óskað er eftir hátíðlegum flutningi, hlýlegu andrúmslofti eða léttri og skemmtilegri stemningu.

Markmiðið er alltaf það sama: að tónlistin verði hluti af minningunni.

Myndir

Aðstaða og þjónusta

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, barnaafmæli, árshátíðir, skírnir og fermingar

Védís Guðmundsdóttir er tónlistarþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Heimasíða þjónustuaðilans

Fleiri tónlistaratriði á höfuðborgarsvæðinu