Ás, safnaðarsalur Áskirkju í Reykjavík rúmar 160 í sæti.
Í hjarta Laugardals.
Stærri safnaðarsalur Áskirkju, Ás tekur allt að 160 manns í sæti eða um 300 manns í standandi boð og er hann á tveimur pöllum. Flygill og hljóðkerfi. Móttökueldhús, borðbúnaðar-og dúkaleiga. Salurinn Ás er á sömu hæð og kirkjuskipið sjálft. Lofthæð salarins er mikil og aflíðandi með einfaldri en samt glæsilegri lýsingu sem minnir á stjörnur. Loftlýsingin er eins og er í kirkjunni. Sérlega háir gluggar. Stórt anddyri með fatahengjum á tveimur stöðum ásamt salernum. Gott aðgengi er fyrir hreyfihamlaða í salinn.
Safnaðarsalurinn er leigður út fyrir t.d. fundi, erfisdrykkjur, brúðkaups-, skírnar-, fermingar- og afmælisveislur samkvæmt sérstökum reglum þar um. Mjög hófleg meðferð léttra vína og bjórs er möguleg í veislum í safnaðarheimilinu. Veislum þarf að vera lokið um miðnætti. Reykingar eru bannaðar í húsinu.
brúðkaup
Ás, safnaðarsalur Áskirkju er veislusalur í Reykjavík og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.