BRASSERIE KÁRSNES – ALLUR STAÐURINN FYRIR YKKAR VIÐBURÐ
Viltu halda viðburð þar sem maturinn, stemningin og góða fólkið eru í aðalhlutverki?
Brasserie Kársnes býður upp á þann möguleika að taka veitingastaðinn frá fyrir einkaviðburði og skapa ykkar eigin upplifun í notalegu og afslöppuðu umhverfi við smábátahöfnina á Kársnesi.
Hvort sem um er að ræða árshátíð, fyrirtækjaveislu, afmæli, brúðkaup, fjölskylduboð, móttöku eða annan sérstakan viðburð, þá er Brasserie Kársnes frábær vettvangur fyrir hópa sem vilja njóta góðs matar og drykkjar í persónulegu umhverfi.
Við leggjum áherslu á að sérsníða viðburðinn að ykkar óskum. Matseðillinn er fjölbreyttur og byggir á metnaðarfullri matargerð, með meðal annars góðum steikum og fiskréttum, ásamt úrvali af vínum og áfengum og óáfengum kokteilum.
EINN STAÐUR – YKKAR EIGIN VIÐBURÐUR
Þegar allur staðurinn er tekinn frá fáið þið rými til að gera kvöldið að ykkar eigin. Við getum aðlagað mat, drykki og fyrirkomulag að tilefninu og unnið með ykkur að því að skapa rétta stemninguna fyrir hópinn.
Fyrir minni hópa er einnig hægt að nýta Svítuna, sérherbergi sem rúmar 12–14 manns og hentar vel fyrir einkasamkvæmi, fundi, fyrirtækjaviðburði og aðrar uppákomur.
HENTAR MEÐAL ANNARS FYRIR:
Fyrirtækjaveislur og árshátíðir
Starfsmannaviðburði
Afmæli og einkasamkvæmi
Brúðkaup og fjölskylduboð
Móttökur og kokteilboð
Kvöldverði og hátíðarkvöld
Fundi og aðra hópviðburði
Þið komið með tilefnið – við sjáum um matinn, drykkinn og stemninguna.
Brasserie Kársnes er kósý og röff hverfisstaður þar sem áhersla er lögð á góðan mat, góða drykki og persónulega þjónustu.
GERUM VIÐBURÐINN EFTIRMINNILEGAN
Hafðu samband við okkur og segðu okkur frá tilefninu. Við finnum rétta fyrirkomulagið, matseðilinn og umgjörðina fyrir ykkar hóp.
brúðkaup, afmæli, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir
Brasserie Kársnes er veislusalur í Kópavogi og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.