Bryggjuhúsið Efri hæð

Veislusalur · Reykjavík

Um þjónustuna

EFRI HÆÐIN – GLÆSILEGT RÝMI FYRIR STÆRRI STUNDIR

Efri hæðin í Bryggjuhúsinu er rúmgóður og glæsilegur veislusalur sem hentar einstaklega vel fyrir stærri viðburði, fyrirtækjaveislur, árshátíðir, móttökur og einkasamkvæmi.

Hér er pláss fyrir allt að 160 gesti í sitjandi veislu eða allt að 240 gesti í standandi uppsetningu, sem gerir efri hæðina að frábærum kosti þegar tilefnið kallar á rými, góða stemningu og sveigjanlegt fyrirkomulag.

Við sérsníðum uppsetningu og þjónustu að hverjum viðburði og getum aðlagað kvöldið að ykkar óskum – hvort sem um er að ræða glæsilegan kvöldverð, hlaðborð, kokteilboð, árshátíð eða fjölmennan fyrirtækjaviðburð.

Efri hæðin býður upp á einstaka umgjörð þar sem hægt er að sameina góðan mat, vín, tónlist og afþreyingu í eina eftirminnilega upplifun. Í sögufrægu Bryggjuhúsinu við Gömlu höfnina mætast karakter hússins og nútímaleg veislustemning á einstaklega fallegan hátt.

Hentar meðal annars fyrir:
Árshátíðir og fyrirtækjaveislur
Starfsmannaviðburði og staffapartý
Stærri afmæli og einkasamkvæmi
Móttökur og kokteilboð
Kvöldverði og hátíðarkvöld
Brúðkaup og stærri fjölskylduviðburði

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir

Bryggjuhúsið Efri hæð er veislusalur í Reykjavík og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri veislusalir á höfuðborgarsvæðinu