Finnsson Vinnustofan/Prívatherbergið er mjög glæsilegt með mikilli lofthæð og sérsmíðuðu 12 manna hringborði með snúningsplötu og þægilegum stólum. Á veggnum er nettengdur skjár sem auðvelt er að tengjast ásamt hljóðkerfi, stillanlegri lýsingu og þjónustuhnapp. Hægt er að draga gardínur fyrir til að hafa fullkomið næði. Sérinngangur fyrir þá sem þess óska. Boðið er upp á ljúffengar veitingar. Vinnustofan hentar vel fyrir þá sem vilja funda og njóta um leið góðra veitinga. Einnig er það gott fyrir þá sem vilja borða saman í góðu næði. Alltaf næg FRÍ bílastæði.
Leiguverð gengur upp í kaup á veitingum.
ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, einkasamkvæmi, afmæli, barnaafmæli, útskriftir, skírnir og fermingar
Finnsson Vinnustofan/Prívatherbergið er veislusalur í Reykjavík og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.