Hlíðasmárinn fyrir fundi og veislur
Hlíðasmárinn er fallegur salur í húsnæði Sálfræðiklínikunnar, staðsettur að Hlíðasmára 14 í Kópavogi.
Salurinn rúmar allt að 30 manns í sæti og hægt er að raða upp borðum og stólum á mismunandi hátt eftir tilefni.
Salurinn rúmar 40 manns í standandi veislur og viðburði.
Ef stólum er raðað upp án, til dæmis sem fyrirlestrarsalur þá rúmar salurinn 50 manns.
Í salnum er sófi og nokkrir hægindastólar sem mynda þægilega setustofu innst í salnum. Til hliðar er eldhús með kaffikönnu, uppþvottavél, örbylgjuofni og ísskáp. Þar eru einnig tvö salerni
Stór skjár er á vegg sem hægt er að tengja við tölvu. Einnig er mögulegt að nýta podcast búnað sem er á staðnum, fyrir upptökur.
Aðgengi er mjög gott. Gengið er inn í anddyri frá götu og þaðan inn í salinn. Þá er hægt að opna hurð að aftan, beint út úr salnum.
Hlíðasmárinn hentar mjög vel fyrir fundi, smærri veislur eins og skírnvar- og fermingaveislur, kennslu, fyrirlestra og námskeið.






ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, skírnir og fermingar, afmæli
Hlíðasmárinn er veislusalur í Kópavogi og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.