Við sinnum hverskyns veisluþjónustu hvort sem það er árshátíð, ferming, erfidrykkja, afmæli, útskrift, kaffihlaðborð eða aðrar óskir.
Glæsigerði er á annarri hæð hótelsins. Salurinn er afar bjartur og er mest nýttur í stórar og litlar veislur, fundi og fyrirlestra. Hann er með flatskjá, tölvutengingu og þráðlausu interneti. Vel er tekið á móti stærri og smærri hópum. Allar veitingar eru frá HVER Restaurant sem býður upp á mjög fjölbreyttan matseðil við öll tækifæri.
Aðstaða í sal:
Þráðlaust net & Myndvarpi – Skjávarpi & Sýningartjald – Hljóðkerfi & Hljóðnemi – Ræðupúlt
Fjöldi gesta: 60 – 200
Fermetrar: 216
brúðkaup, afmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir
Hótel Örk - Glæsigerði er veislusalur í Hveragerði og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.