Dalur, safnaðarsalur Áskirkju rúmar 80 í sæti og 150 standandi, leiga frá 60.000 kr.
Hinn minni sem nefndur hefur verið Dalur er á neðri hæð kirkjunnar og tekur fulldekkaður um 80 manns í sæti. Þessi salur hefur fallega stóra glugga til tveggja átta sem bjóða uppá stórkostlegt útsýni og sjónræn tengsl við Laugardalinn og miðborgina. Gott aðgengi er að salnum.
Í hjarta Laugardals í Reykjavík.
Safnaðarsalurinn er leigður út fyrir t.d. fundi, erfisdrykkjur, brúðkaups-, skírnar-, fermingar- og afmælisveislur samkvæmt sérstökum reglum þar um. Mjög hófleg meðferð léttra vína og bjórs er möguleg í veislum í safnaðarheimilinu. Veislum skal vera lokið um miðnætti. Reykingar eru bannaðar í húsinu.



erfidrykkjur, brúðkaup, afmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, skírnir og fermingar, útskriftir
Dalur, safnaðarsalur Áskirkju er veislusalur á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.