Stemningsmaður með 8 ára reynslu sem plötusnúður og skemmtanastjóri. Sérhæfi mig í að skapa ógleymanlega upplifun og halda dansgólfinu lifandi!
Ég hef yfir 8 ára reynslu sem plötusnúður og skemmtanastjóri undir nafninu Kobbicoco og legg metnað í að gera hvern viðburð að upplifun sem fólk man eftir.
Hvort sem þú ert að skipuleggja árshátíð, brúðkaup, fyrirtækjaviðburð, ball eða einkasamkvæmi, þá mæti ég með réttu tónlistina, orkuna og stemninguna sem fær fólk á dansgólfið. Ég les í hópinn, finn réttu lögin á réttum tíma og held fjörinu gangandi frá fyrsta lagi til þess síðasta.
Þitt tilefni, ég sé um að gera það ógleymanlegt!

brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, hátíðir, árshátíðir, útskriftir
Kobbicoco er viðburðaþjónusta í Hafnarfirði og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.